Reykjavíkurborg logo

Forstöðumaður í málaflokki heimilislausra hjá Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg
5 hours ago
Full-time
On-site
Íbúðakjarni Hringbraut 121

JobsCloseBy Editorial Insights

Reykjavíkurborg leitar að reynslumiklum forstöðumanni yfir íbúðakjarna fyrir konur sem glíma við heimilisleysi, með áherslu á húsnæði fyrst og skaðaminnkun. Þú veitir faglega forystu, ber ábyrgð á rekstri starfseiningar og leiðir stuðning við konur með langvarandi reynslu af heimilisleysi, í samvinnu við notendur, hagsmunaaðila og nágranna, allt í samræmi við lög, reglur og markmið velferðarsviðs. Hæfniskröfur: háskólamenntun í heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísindum, æskilegt framhaldsnám, reynsla af störfum með einstaklingum með fjölþættan vanda og reynsla af stjórnun, sjálfstæði, skipulagshæfni, framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar, húsnæði fyrst og bata, íslensku C1 og hreint sakavottorð. Fríðindi: stytt vinnuvika, frítt í sundi í öllum sundlaugum Reykjavíkur, heilsuræktarstyrkur og menningarkort. Nánari upplýsingar og umsóknir til Soffíu Hjördísar Ólafsdóttur á [email protected].


Vesturmiðstöð leitar að framsýnum og metnaðarfullum forstöðumanni yfir íbúðakjarna fyrir konur innan málaflokks heimilislausra. Viðkomandi veitir faglega forystu, ber ábyrgð á rekstri starfseiningar og er leiðandi í stuðningi við konur sem hafa langvarandi reynslu af heimilisleysi.

Markmiðið með þjónustunni er að veita konum sem stríða við heimilisleysi viðeigandi þjónustu undir formerkjum húsnæði fyrst hugmyndafræðinnar. Með því eru gerðar ákveðnar kröfur um skipulag og innihald þjónustunnar. Þjónustan er einstaklingsmiðuð, batamiðuð og tekur mið af hugmyndafræði um sjálfstætt líf og skaðaminnkun.

Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Dagleg stýring og rekstur.

• Þátttaka í stefnumótun ásamt þróun og uppbyggingu HF þjónustu.

• Samstarf við helstu hagsmunaaðila, s.s. notendur, samstarfsaðila og nágranna.

• Tryggja að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs og Reykjavíkurborgar.

Hæfniskröfur

• Háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda sem nýtist í starfi.

• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg.

• Reynsla af störfum með einstaklingum með fjölþættan vanda.

• Reynsla af stjórnun.

• Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni, frumkvæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

• Þekking og reynsla á hugmyndafræði skaðaminnkunar, Húsnæði fyrst og batahugmyndafræði.

• Íslenskukunnátta C1 (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).

• Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi:

  • Styttri vinnuvika
  • Frítt í sund í öllum sundlaugum Reykjavíkur
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Menningarkort

Nánari upplýsingar um starfið

Laun er samkvæmt samningi Reykjavikurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir í tölvupósti [email protected].